Ástæða er til að þakka finnsku björgunarsveitunum fyrir þátttöku þeirra í hinni umfangsmiklu aðgerð á Faxaflóa, þar sem leitað var að íslenskum sjómönnum er taldir voru í sjávarháska. Skip, þyrlur og flugvélar frá flotum vinaþjóða okkar hafa oft tekið þátt í slíkum aðgerðum hér við land og bjargað mörgum mannslífum. Fyrir nokkrum árum fórst danskur sjóliði við slík björgunarstörf. Enginn veit hvenær þær aðstæður skapast að þörf verður á samhæfðum aðgerðum allra tiltækra björgunarsveita við norðanvert Atlantshaf, t.d. vegna sjóslyss, flugslyss, umhverfisslyss, náttúruhamfara eða jafnvel hryðjuverka. Það segir sig sjálft að við slíkar aðstæður skiptir miklu máli að björgunarsveitirnar, sem í langflestum tilvikum koma frá flota viðkomandi þjóða, hafi æft saman og að öll samskipti gangi greiðlega fyrir sig og séu þaulæfð. Í stað þess að styðja við slíkt samstarf, hafa borgarfulltrúar BF og Samfylkingar lagt stein í götu þess með því að lýsa ítrekað yfir því að varðskip og björgunarvélar erlendra vinaþjóða séu óvelkomin til Reykjavíkur.
Á fundi borgarstjórnar á morgun, þriðjudag, fara fram umræður um hlutverk Reykjavíkur í björgunarstarfi að frumkvæði okkar borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
http://visir.is/tvaer-finnskar-herthyrlur-taka-thatt-i-leitinni/article/2014140209896